Erlent

Harry æfir fyrir Afganistan

MYND/AFP

Harry prins er víst kominn í þjálfunarbúðir breska hersins stutt fyrir utan Calgary í Kanada. Þar er verið að undirbúa hann fyrir hugsanlega ferð hans til Afganistan. Æðstu yfirmenn hersins komu í veg fyrir að Harry gæti farið til Íraks en talið var að nærvera hans gæti sett félaga hans í hættu.

Í Suffield, en svo heita þjálfunarbúðirnar, er eitt besta æfingasvæði breska hersins. Umhverfið er talið líkjast mjög því sem hermenn sem fara til Afganistan þurfa síðar að berjast í.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×