Erlent

Keyrði á 35 manns

Kona í Washington D.C. í Bandaríkjunum keyrði bílinn sinn í gegnum götuhátíð í gærkvöldi og særði 35 manns. Lögregla sagði að 7 af fórnarlömbum hennar hefðu meiðst alvarlega. Hún var með sjö ára dóttur sína með sér í bílnum. Konan, Tonya Bell, 30 ára, var síðan handtekin. Enn hefur ekki tekist að komast að því hvers vegna konan gerði þetta en beðið er eftir niðurstöðum úr blóðrannsóknum.

Konan kom hægt og rólega inn á svæðið en fór síðan að gefa smám saman í og keyrði á lokum á svið þar sem fólk var að dansa. Talið er að hún hafi verið á nærri 100 kílómetra hraða þegar hún fór hvað hraðast. Konan ólst upp í hverfinu og þekktu hana margir á svæðinu. Sumir höfðu reynt að stöðva hana þegar hún byrjaði að keyra óreglulega fyrr um morguninn en hún lét eins og hún virtist ekki þekkja þá og hélt ferð sinni áfram.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×