Körfubolti

Cleveland í úrslit NBA

AP Images

Cleveland tryggði sér í nótt rétt til að leika í úrslitum NBA í fyrsta sinn í sögu félagsins. Cleveland vann sjöttu viðureignina gegn Detroit Pistons í nótt og vann þar með einvígið 4-2. Leikurinn endaði 98:82 og var Daniel Gibson stigahæstur með 31 stig í liði Cleveland. LeBron James skoraði 20 stig í leiknum. Richard Hamilton var stigahæstur í liði Detroit með 29 stig.

Cleveland mætir San Antonio Spurs í úrslitum NBA næstkomandi fimmtudagskvöld.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×