Golf

Birgir Leifur á einu höggi yfir pari

NordicPhotos/GettyImages

Birgir Leifur hefur lokið 9 holum af 18 á öðrum keppnisdegi á Opna velska Meistaramótinu í dag. Hann fór þessar 9 holur á einu höggi yfir pari en fyrir daginn var hann á fjórum höggum yfir pari. Hann er því samtals á 5 höggum yfir pari.

Birgir Leifur situr nú í 134. sæti en Mads Vibe-Hastrup er efstur með átta undir pari.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×