Fótbolti

LA Galaxy tilbúið að lána David Beckham

AFP

Alaxei Lalas, forseti LA Galaxy, segir til greina koma að David Beckham verði lánaður frá félaginu til liðs í Evrópu. Þjálfari liðsins er ekki jafnhrifinn af þessari hugmynd, en keppni í MLS deildinni lýkur í nóvember.

"Við tökum það alltaf til greina ef leikmenn okkar geta farið sem lánsmenn til annara félaga ef það er okkar félagi í hag og getur orðið til þess að leikmennirnir verði betri fyrir vikið," sagði Lalas. Þjálfari liðsins Frank Yallop er ekki sammála þessu og telur það Beckham og öðrum leikmönnum fyrir bestu að hvíla sig þegar þeir eiga frí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×