Erlent

Chavez hótar fleiri sjónvarpsstöðvum

Stjórnvöld í Venesúela ásökuðu í gær sjónvarpsstöð í landinu um að hvetja til þess að Hugo Chavez, forseti landsins, yrði ráðinn af dögum. Daginn áður höfðu stjórnvöld stöðvað útsendingar hjá annarri sjónvarpsstöð.

Þá hafa þau einnig sagt frá því að þau ætli sér að kæra bandarísku sjónvarpsstöðina CNN fyrir að tengja Chavez við hryðjuverkahópinn al-Kaída. Stjórnvöld í Venesúela segja að sjónvarpsstöðin hafi birt myndir af Chavez og Osama Bin Laden til skiptis. CNN neitar því.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×