Fótbolti

Arnór: Eiður ekki á leið til Englands

NordicPhotos/GettyImages

Breska blaðið The Sun hefur eftir Arnóri Guðjohnsen í dag að sonur hans og skjólstæðingur Eiður Smári sé ekki á leið til Englands þó hann hafi verið orðaður við fjölda liða þar í landi undanfarnar vikur.

"Eiður hefur ekkert verið að hugsa um að fara til Englands og vill ólmur gera betur en hann hefur gert á síðustu sex mánuðum hjá Barcelona. Þetta hefur verið erfiður tími fyrir hann en hann er rétt að byrja að aðlagast spænska boltanum. Maður veit auðvitað aldrei hvað gerist og það er heiður fyrir hann að vera orðaður við félög eins og Newcastle, en ég hef satt best að segja ekki heyrt neitt frá þessum félögum og Eiður vill halda áfram að spila á sama stað," sagði Arnór.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×