Fótbolti

Beckham langaði til AC Milan

AFP
Knattspyrnumaðurinn David Beckham hefur upplýst að hann hafi langað mikið að samþykkja að ganga í raðir AC Milan þegar honum stóð það til boða fyrir nokkrum mánuðum. Hann segist þó hafa ákveðið að setja fjölsklduna í fyrsta sæti og fara til Bandaríkjanna.

Milan hafði samband við Beckham þegar slitnaði upp úr viðræðum hans við forráðamenn Real Madrid í vetur og úr varð að hann ákvað að ganga til liðs við LA Galaxy í Bandaríkjunum eins og frægt varð. Hann segir tilboð Milan hafa verið afar freistandi.

"Það var ekki auðvelt að neita Milan, sem er eitt stærsta og sterkasta félagslið í veröldinni," sagði Beckham í samtali við ítalska fjölmiðla. "Félagið, þjálfarinn, leikmennirnir, forsetin, saga þess - allt þetta og sú staðreynd að Roni (Ronaldo) fór þangað - gerði það að verkum að mig klæjaði að slá til. Það var erfitt að neita þeim og svo hefur Ítalía upp á svo margt að bjóða eins og knattspyrnuna, stóru nöfnin, besta matinn, vínið og tískuna," sagði Beckham.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×