Erlent

Tyrkneska konan með 12 kg af sprengiefni

Verslun sem skemmdist í sjálfsmorðsárásinni í Ulus í Ankara í gær.
Verslun sem skemmdist í sjálfsmorðsárásinni í Ulus í Ankara í gær. MYND/AFP

Kona sem tyrkneska lögreglan tók höndum í suðurhluta Tyrklands í dag áætlaði að gera sjálfsmorðsárás. Konan var handtekin í borginni Adana. Ilhan Atis ríkisstjóri borgarinnar sagði fréttastofunni Anatolian að konan hefði verið með rúmlega 12 kg af sprengiefni, þar af tvær handsprengjur og 12 hvellhettur.

Konan náðist þegar hún reyndi að komast undan lögreglunni á bíl. Karlmaður var einnig handtekinn vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×