Bush svarar fyrir sig -harkalega Óli Tynes skrifar 20. maí 2007 20:01 Jimmy Carter, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna. MYND/AP
George Bush hefur loksins svarað sífellt harkalegri gagnrýni Jimmys Carter fyrrverandi forseta á sig og forsetatíð sína. Carter sem er demókrati hefur meðal annars sagt að Bush sé versti forseti sem Bandaríkin hafi nokkrusinni átt. Carter húðskammaði einnig Tony Blair fyrir stuðning hans við Bush. Á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í dag brást Tony Fratto, blaðafulltrúi forsetans við þessum árásum. Hann sagði að harkaleg persónuleg gagnrýni Carters væri sorgleg. "Ég held að þetta sé óheppilegt," sagði Fratto. "Og ég held að hann skipti sífellt minna máli með þessar athugasemdir sínar." Jimmy Carter sat aðeins eitt kjörtímabil á stóli forseta og þótti ekki sérlega röggsamur. Gagnrýnendur hans segja að hann hafi hunskast úr embætti með skottið á milli lappanna, án þess að honum tækist að fá lausa gíslana sem Íranar tóku í bandaríska sendiráðinu í Teheran. Gíslunum var haldið í 444 daga. Carter er mjög trúhneigður maður og hefur unnið að góðgerðarmálum síðan hann lét af embætti forseta. Fyrir það hefur hann meðal annars hlotið friðarverðlaun Nóbels.
Erlent Mest lesið „Þetta er bara það sem aðrir hópar hjá okkur hafa fengið í gegnum tíðina“ Innlent Lítil huggun í svörum sendiráðsins og íþróttafólki hótað lífstíðarbanni Innlent Engin röð á Læknavaktinni Innlent Nágranni vill banna kylfingum að nota veginn að Bakkakotsvelli Innlent Vilja að RÚV feti í fótspor Slóveníu Innlent Ógeðslega stoltur af kennurum Innlent Kjarasamningur kennara í höfn Innlent Leggur til íslenskan her, leyniþjónustu og herskyldu Innlent Einróma samþykki og borgarstjóri í skýjunum Innlent Vilja hvalkjöt af matseðlinum Innlent Fleiri fréttir Sér fyrir sér að selja 10 milljónir „gullkorta“ til erlendra auðjöfra Merz segir viðræður hafnar við Sósíaldemókrata Yfir 50 látist af völdum óþekktra veikinda í Austur-Kongó Ætla sjálf að velja blaðamenn í Hvíta húsið Samkomulag milli Úkraínu og Bandaríkjanna í höfn Litlu mátti muna á flugbrautinni Eykur fjárútlát í herinn til muna vegna „hættulegra nýrra tíma“ Ríkisstarfsmenn ráðþrota gagnvart furðulegri fyrirskipun Musk Nær útilokað að smástirni sem fylgst var með rekist á jörðina Fjórir látnir eftir að brú hrundi í Suður-Kóreu Freistar Bandaríkjanna með gulli og grænum skógum Staða Sinaloa slæm eftir blóðug átök Valdi dauða með aftökusveit Segir Selenskí á leið til Washington Höktir í stuðningi til Úkraínu hjá Sameinuðu þjóðunum Franskur skurðlæknir játar svívirðileg brot á börnum Sakaður um að þiggja mútur fyrir að tala máli Rússa á Evrópuþinginu Væntanlegur kanslari segir Evrópu þurfa sjálfstæði frá Bandaríkjunum Formaður sænska Miðflokksins hættir Íhaldsmenn sigruðu en öfgahægrið náði sögulegum árangri Flestir starfsmenn USAid sendir í leyfi og 2.000 störf lögð niður Sendu skriðdreka inn á Vesturbakkann í fyrsta sinn í 23 ár Útgönguspár benda til sögulegra úrslita Tilbúinn að stíga til hliðar Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Þjóðverjar ganga að kjörborðinu: „Vinstrið er búið“ Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Sjá meira