Erlent

Moska í Hyderabad sprengd í loft upp

Að minnsta kosti fimm létu lífið í sprengingu í mosku á bænatíma í borginni Hyderabad í ríkinu Andhra Pradesh á Indlandi í morgun. Lögregla skýrði frá þessu í morgun. 22 særðust í sprengingunni í Mecca Masjid moskunni, en hún er stærsta moskan í borginni.

Mikill fjöldi múslima býr í borginni og margar sögufrægar moskur eru í henni. Ekki er vitað hverjir eru að baki sprengjuárásinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×