Naumur sigur hjá San Antonio 17. maí 2007 14:22 Manu Ginobili hefur ekki verið með sjálfum sér í úrslitakeppninni en hann var öflugur í síðari hálfleiknum í nótt NordicPhotos/GettyImages
San Antonio er komið í vænlega 3-2 stöðu í einvíginu við Phoenix í undanúrslitum Vesturdeildarinnar í NBA eftir nauman 88-85 sigur á útivelli í nótt. Phoenix liðið var án tveggja lykilmanna sem voru í leikbanni, en hafði undirtökin fram á lokamínúturnar. Cleveland klúðraði á sama tíma möguleika sínum á að komast í úrslit Austurdeildar með því að steinliggja 83-72 á heimavelli fyrir New Jersey. Manu Ginobili var sterkur í síðari hálfleiknum í nótt og skoraði 26 stig og hirti 10 fráköst fyrir San Antonio. Tim Duncan skoraði 21 stig, hirti 12 fráköst og varði 5 skot. Shawn Marion skorai 24 stig og hirti 17 fráköst fyrir Phoenix og Steve Nash var með 19 stig og 12 stoðsendingar, en liðið saknaði Amare Stoudemire og Boris Diaw mikið. Jason Kidd var enn og aftur besti maður New Jersey þegar liðið skellti Cleveland á sannfærandi hátt á útivelli í nótt. Kidd skoraði 20 stig og hirti 9 fráköst, Ricard Jefferson skoraði 15 stig og hirti 8 fráköst og Mikki Moore skoraði 14 stig. Vince Carter skoraði aðeins 12 stig og hefur algjörlega brugðist liði sínu í úrslitakeppninni. New Jersey skoraði aðeins 6 stig í fjórða leikhlutanum en hafði samt nokkuð þægilegan sigur, því Cleveland - sem þó var á heimavelli - skoraði þá aðeins 13 stig. LeBron James skoraði 20 stig og hirti 9 fráköst fyrir Cleveland og Zydrunas Ilgauskas 16, en þessi leikur fer ekki í sögubækurnar fyrir glæsileika. Cleveland hefur yfir 3-2 í einvíginu en næsti leikur er í New Jersey.
NBA Mest lesið Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Handbolti Ósætti við úrelta löggjöf: „Sennilega eina þjóðin eftir í heiminum“ Sport „Vil miklu frekar eiga feril í MMA heldur en að vinna skrifstofustarf“ Sport Tyson segist ekki berjast vegna peninganna Sport Víkingar spila á Íslandi í dagsbirtu Fótbolti Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Handbolti „Ein besta markvarsla sem ég hef séð“ Fótbolti Segir Leipzig hinn fullkomna áfangastað fyrir unga og efnilega leikmenn Fótbolti Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum Handbolti Arftaki Kristjáns óvænt hættur Handbolti Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira