Erlent

Fann lík í nýju íbúðinni

Spænskur maður sem keypti sér íbúð á uppboði án þess að skoða hana fyrst fann lík fyrrum eiganda hennar í íbúðinni. Líkið hafði varðveist fullkomnlega en eigandinn, kona sem var 55 ára, lést af eðlilegum orsökum sex árum áður. Íbúðin var seld á uppboði þar sem eigandinn hætti af greiða af húsnæðisláni sínu.

Svo virðist sem hvorki fyrrum eiginmaður hennar né börn hennar hafi skilað inn skýrslu um hvarf konunnar og er það nú í rannsókn. Talið er að lík hennar hafi varðveist vegna sjávarloftsins í þorpinu þar sem húsið var.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×