Erlent

Sarkozy tekur við embætti í dag

Jónas Haraldsson skrifar
Nicolas Sarkozy verður forseti Frakklands klukkan níu í fyrramálið.
Nicolas Sarkozy verður forseti Frakklands klukkan níu í fyrramálið. MYND/AP
Jacques Chirac, forseti Frakklands, mun í dag láta af völdum og Nicolas Sarkozy, sigurvegari forsetakosninganna sem haldnar voru í mánuðinum, taka við.

Chirac kvaddi frönsku þjóðina í sjónvarpsávarpi í gær eftir tólf ár í embætti. Hann sagðist stoltur af störfum sínum. Engu að síður skilur hann átta prósent þjóðarinnar eftir atvinnulaus, þjóð sem er tvískipt og óviss um hlutverk sitt í alþjóðakerfinu.

Chirac mun láta af völdum klukkan níu að íslenskum tíma. Meðal fyrstu embættisverka Sarkozy verður að halda ræðu og vera síðan viðstaddur hersýningu. Strax eftir hana mun hann síðan ferðast til Þýskalands til viðræðna við Angelu Merkel, kanslara Þýskalands og núverandi forseta Evrópusambandsins.

Ekki er búist við því að Sarkozy tilnefni ríkisstjórn og forsætisráðherra fyrr en á fimmtudaginn kemur. Fyrrum ráðherra og ráðgjafi Sarkozy, Francois Fillon, er talinn líklegastur til þess að verða forsætisráðherra. 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×