Erlent

Heitir því að sameina Frakka

Guðjón Helgason skrifar

Til átaka kom milli lögreglu og mótmælenda í nokkrum borgum Frakklands í nótt um leið og hægrimenn þar í landi fögnuðu sigri Nicolas Sarkozy í forsetakosningunum í gær. Nýr forseti heitir því að sameina Frakka eftir harðvítuga kosningabaráttu síðustu vikna.

Sarkozy fékk 53% atkvæða í seinni umferð kosninganna en sósíalistinn Segolene Royal 47%. Kjörsókn var með besta móti en 85% kosningabærra Frakka neyttu réttar síns. Þetta er í þriðja sinn í röð sem sósíalistar verða undir í frönsku forsetakosningunum.

Royal játaði sig sigraða snemma í gærkvöldi og þakkaði þeim sautján milljón Frökkum sem greiddu henni atkvæði sitt. Hún sagðist vona að Sarkozy gerði sitt besta til að sameina frönsku þjóðina. Nýr forseti var fljótur að heita því, Frakkar hefðu viljað breytingar og hann ætlaði að beita sér fyrir þeim. Sarkozy hefur heitið því að minnka atvinnuleysi úr 8.3% í 5% fyrir árið 2012 og lofað skattalækkunum.

Sarkozy, sem er 52 ára gamall sonur ungversks innflytjanda, bakaði sér óvinsældir í Frakklandi fyrir um tveimur árum þegar hann gengdi embætti innanríkisráðherra. Þá tók hann hart á mótmælendum í óeirðum sem blossuðu upp víða um landið. Einmitt þeir atburðir gerðu það að verkum að margir spáðu óeirðum í Frakklandi liðna nótt yrði hann kjörinn.

Sú varð raunin og til átaka kom, þó ekki alvarlegra. Tveir lögreglumenn særðust í Nantes þegar um þúsund andstæðingar forsetans létu grjóthnullungum og flöskum yfir lögreglumenn sem svöruðu með táragasi. Mótmælendur voru handteknir þar, í París og fjórum öðrum borgum.

Ekki eru þó allir jafn ósáttir við sigur Sarkozys. Ráðamenn í Washington fagna enda Sarkozy sagt að Bandaríkjamenn geti treyst á stuðning Frakka á meðan hann sé við völd en þó aðeins ef þeir herði á baráttunni gegn loftslagsbreytingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×