Erlent

Vill að Olmert víki

Guðjón Helgason skrifar

Tzipi Livni, utanríkisráðherra Ísraels hefur hvatt Ehud Olmert til þess að segja af sér sem forsætisráðherra. Hún segir jafnframt að hún muni sækjast eftir forystu í Kadima-flokki hans. Livni skýrði frá þessu eftir fund sinn með Olmert í dag.

Kröfur um afsögn Olmerts verða háværari með hverjum deginum eftir að rannsóknarnefnd birti í fyrradag svarta skýrslu um stríðsreksturinn gegn Hizbollah-liðum í Líbanon í fyrra. Olmert hefur sagt að hann ætli ekki að víkja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×