Körfubolti

Houston - Utah í beinni í kvöld

Tracy McGrady og félagar verða að vinna Utah í kvöld eftir tvö töp í röð
Tracy McGrady og félagar verða að vinna Utah í kvöld eftir tvö töp í röð NordicPhotos/GettyImages

Fimmti leikur Houston Rockets og Utah Jazz í fyrstu umferð úrslitakeppni NBA verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á miðnætti í kvöld. Hér er á ferðinni mest spennandi einvígið í úrslitakeppninni til þessa ef marka má stöðuna, því Houston vann fyrstu tvo leikina og Utah síðustu tvo á heimavelli og því er um algjöran lykilleik að ræða í Houston í kvöld.

Annað kvöld klukkan 1:30 verður svo á dagskrá fimmti leikur Dallas og Golden State, en þar eru deildarmeistarar Dallas komnir í verulega vond mál og eru undir 3-1. Liðið á heimaleik annað kvöld, en ljóst að ekkert má nú út af bera hjá liðinu ef það á ekki að verða þriðji deildarmeistarinn í sögu NBA til að falla úr keppni í fyrstu umferð. Leikir liðanna til þessa hafa verið sannkölluð flugeldasýning og óhætt að lofa skemmtilegum leik annað kvöld.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×