Íslenski boltinn

Valur og KR leika til úrslita

Valur og KR leika til úrslita um deildarbikar kvenna í knattspyrnu eða Lengjubikarnum eins og hann er kallaður. Liðin fóru með sigur af hólmi í undanúrslitaviðureignum sínum í dag.

Valur mætti Keflavík á Stjörnuvelli í dag og hafði 3-0 sigur þar sem Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði tvö markanna en Guðný Björk Óðinsdóttir eitt. Valsstúlkur sem eru Íslandsmeistarar mæta KR í úrslitaleiknum í Egilshöll næsta föstudag en KR-stúlkur lögðu Breiðablik í dag, 1-0.

Í karlaflokki leika FH og Valur til úrslita. FH lagði HK 4-1 í gærkvöldi. Þá vann Valur nauman sigur á Víkingum, 1-0. Úrslitaleikur karlanna fer fram á Stjörnuvelli á þriðjudaginn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×