Körfubolti

Phoenix og LA Lakers í beinni á Sýn Extra

Kobe Bryant og Steve Nash verða í eldlínunni á Sýn Extra í kvöld.
Kobe Bryant og Steve Nash verða í eldlínunni á Sýn Extra í kvöld. MYND/Getty

Sjónvarpsstöðin Sýn mun sýna mikið frá úrslitakeppni NBA-deildarinnar næstu vikur og má segja að fjörið hefjist formlega í kvöld þegar Phoenix og LA Lakers eigast við í sínum fyrsta leik. Leikurinn hefst kl. 19 og verður verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Extra, en auk þess verður útsending frá leiknum sýnd á Sýn strax að loknum leik Barcelona og Villareal í spænsku úrvalsdeildinni.

Þá er einnig rétt að minna á að fyrsti leikur San Antonio og Denver verður sýndur í beinni útsendingu á NBA-sjónvarpsstöðinni sem er hluti af Digital Ísland. Leikurinn hefst kl. 23.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×