Golf

Weekley sigraði á Heritage mótinu

NordicPhotos/GettyImages

Bandaríski kylfingurinn Boo Weekley vann í dag sinn fyrsta sigur á PGA mótaröðinni í golfi þegar hann sigraði á Heritage mótinu í Suður-Karólínu. Weekley lauk lokahringnum í dag á þremur höggum undir pari og samtals á 13 höggum undir pari - höggi á undan Suður-Afríkumanninum Ernie Els sem átti fínan lokasprett á mótinu.

Keppni á lokahringnum var frestað í gær vegna veðurs en Weekley vann upp tveggja högga forskot og sigraði á 270 höggum. Stephen Leaney frá Ástralíu hafði verið með forystuna á lokasprettinum, en Ernie Els var á pari á lokahringnum og tryggði sér annað sætið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×