Körfubolti

Jackson flaug inn í heiðurshöllina

Phil Jackson og Red Auerbach eru einu þjálfararnir í sögu NBA sem unnið hafa níu meistaratitla
Phil Jackson og Red Auerbach eru einu þjálfararnir í sögu NBA sem unnið hafa níu meistaratitla NordicPhotos/GettyImages
Þjálfarinn Phil Jackson hjá LA Lakers var í dag tekinn inn í heiðurshöllina í NBA deildinni. Hann vann sex meistaratitla með Chicago Bulls á tíunda áratug síðustu aldar og aðra þrjá með liði LA Lakers í byrjun aldarinnar. Aldrei var spurning hvort Jackson færi inn í heiðurshöllina heldur aðeins hvenær og hann hefur nú fengið þar sæti á fyrsta árinu sem hann kom til greina.
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×