Golf

Birgir Leifur lauk keppni á pari

Birgir Leifur Hafþórsson er 340 þúsund krónum ríkari eftir helgina.
Birgir Leifur Hafþórsson er 340 þúsund krónum ríkari eftir helgina. MYND/Getty

Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson lauk keppni á pari á Madeira-mótinu í Portúgal og er í 45. sæti þegar um helmingur keppenda á eftir að ljúka leik. Sá árangur færir Birgi Leifi um 340 þúsund krónur í verðlaunafé, en hann lék á einu höggi yfir pari í morgun.

Birgir Leifur fékk skramba á sinni fyrstu holu í morgun, lék á tveimur höggum yfir pari. Þessi byrjun gerði honum erfitt fyrir en hann lék næstu 12 holur á pari. Á síðustu fimm holunum fékk Birgir Leifur síðan tvo fugla en einn skolla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×