Golf

Birgir Leifur á einu höggi yfir pari eftir 11 holur

Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr Leyni, er á einu höggi yfir pari þegar hann hefur leikið ellefu holur af átján á opna Madeira mótinu í golfi á eyjunni Madeira sem tilheyrir Portúgal.

Samtals er hann því á þremur höggum yfir pari þar sem hann lék á tveimur höggum yfir pari á fyrsta degi í gær. Birgir Leifur byrjaði vel og fékk tvo fugla og fimm pör á fyrstu sjö holunum en í kjölfarið komu þrír skollar og eitt par. Hann er sem stendur í 77. sæti ásamt hópi manna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×