Golf

Birgir Leifur á pari eftir tíu holur

Birgir Leifur Hafþórsson er á pari eftir 10 holur á opna Madeiramótinu í golfi. Birgir Leifur fékk fugl á 3. holu en skolla á þeirri áttundu. Hann hefur parað hinar holurnar. Englendingurinn Peter Baker hefur forystu, á 5 undir pari eftir 13 holur en annar er Daninn Mats Vibe-Hastrup, höggi á eftir.

Birgir Leifur er í 14-29. sæti en 71 kylfingur er byrjaður að spila Santo da Serra eða um helmingur þeirra sem keppa á mótinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×