Körfubolti

Ummæli Phil Jackson kostuðu 7 milljónir

Phil Jackson segir NBA vera á nornaveiðum
Phil Jackson segir NBA vera á nornaveiðum NordicPhotos/GettyImages
Phil Jackson þjálfari LA Lakers í NBA deildinni var í dag sektaður um 3,5 milljónir króna fyrir ummæli sín síðasta fimmtudag, þegar hann sagði forráðamenn deildarinnar vera á nornaveiðum. Hann lét þessi orð falla eftir að aganefnd deildarinnar rannsakaði meint brot Kobe Bryant hjá Lakers í þriðja sinn á stuttum tíma. Þá var félagið einnig sektað um sömu upphæð og því kostuðu ummælin alls um 7 milljónir króna.
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×