Körfubolti

Milwaukee rekur þjálfarann

NordicPhotos/GettyImages

Terry Stotts var í kvöld rekinn úr starfi sínu sem þjálfari NBA liðsins Milwaukee Bucks. Liðinu hefur gengið afleitlega í vetur og er það í neðsta sæti miðdeildarinnar með 23 sigra og 41 tap. Ekki hefur verið tilkynnt hver tekur við starfinu út leiktíðina.

Milwaukee hefur alls ekki staðið undir væntingum á tímabilinu en þó meiðsli lykilmanna hafi vissulega sett stórt strik í reikninginn í vetur - hefur Stotts verið gagnrýndur harðlega fyrir störf sín.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×