Körfubolti

Yao Ming óstöðvandi

AP

Kínverski risinn Yao Ming skoraði 37 stig í gærkvöldi þegar Houston Rockets sigraði Orlando Magic 103-92. Ming er nýstaðinn upp úr erfiðum meiðslum og var aðeins að spila fjórða leik sinn eftir að hafa misst af 32 leikjum eftir að hafa fótbrotnað fyrr á leiktíðinni. Tracy McGrady var einnig atkvæðamikill í liði Houston, skoraði 19 stig og var með 10 stoðsendingar. Í síðustu 10 leikjum hefur Houston haft betur í rimmunni við Orlando í 9 þeirra.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×