Innlent

Ríkið selur Hitaveitu Suðurnesja

Ríkið hefur auglýst rúmlega 15 prósent eignarhluta sinn í Hitaveitu Suðurnesja hf. til sölu. Framkvæmdanefnd um einkavæðingu í umboði fjármálaráðherra hefur ráðið Capacent sem ráðgjafa við söluna, en um er að ræða rúm 15 prósent af heildar hlutafé félagsins. Nafnverðið er rúmur milljarður króna.

Söluferli er tvíþætt, og lýkur fyrri hluta þess þann 2. apríl, þegar frestur til þeirra sem hafa hug á að bjóða í eignarhlutinn rennur út. Þeir sem uppfylla síðan ákveðin skilyrði geta tekið þátt í seinni hluta söluferlisins sem stefnt er að ljúki í lok aprílmánaðar.

Hitaveita Suðurnesja og hluthafar þess eiga forkaupsrétt að eignarhlutnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×