Fótbolti

Real tapaði stigum

Mark Nistelrooy dugði Real ekki í kvöld
Mark Nistelrooy dugði Real ekki í kvöld NordicPhotos/GettyImages
Real Madrid tókst ekki að komast upp að hlið Valencia í spænska boltanum í kvöld þegar liðið náði aðeins 1-1 jafntefli gegn lægra skrifuðum grönnum sínum í Getafe á heimavelli. Daniel Guiza kom gestunum í 1-0 eftir 38 mínútur en Ruud Van Nistelrooy jafnaði úr víti á lokasekúndum fyrri hálfleiksins. Heimamenn komust ekki lengra að þessu sinni og þurfa að sætta sig við fjórða sætið - tveimur stigum á eftir Valencia.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×