Lífið

Jolie-Pitt að ættleiða aftur

Angelina Jolie.
Angelina Jolie. MYND/Vísir
Angelina Jolie og Brad Pitt ætla sér að ættleiða barn frá Víetnam á næstu dögum. Ættleiðingarfulltrúi í Víetnam sagði að Angelina hefði skilað inn eyðublaði þar sem hún biður um leyfi til þess að ættleiða barn frá landinu.

Vu Doc Long, yfirmaður alþjóðlegu ættleiðingarstofnunar Víetnams, sagði að Angelina yrði í þeirra augum eins og hver annars útlendingur sem ætlaði sér að ættleiða víetnamskt barn. Umsóknarferlið verður nokkrir mánuðir.

Leikara eyddu þakkargjörðarhátíðinni á síðasta ári í Víetnam. Þar léku þau við börn á munaðarleysingjahæli nálægt höfuðborginni, Ho Chi Minh borg. Þetta verður ekki í fyrsta sinn sem þau ættleiða börn af erlendu bergi brotnu. Fyrir eiga þau Maddox frá Kambódíu og Zahara frá Eþíópíu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×