Lífið

Magnús áfram í Meistaranum

Magnús Lúðvík Þorláksson tryggði sér fyrr í kvöld sæti í 8 manna úrslitum í Meistaranum, spurningakeppninni sem sýnd er á Stöð 2. Magnús Lúðvík lagði þá Baldvin Má Baldvinsson í spennandi viðureign þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en í lokaspurningunni.

Magnús Lúðvík er yngsti keppandinn í Meistaranum í ár. Hann er 18 ára gamall nemi við  Menntaskólann í Reykjavík, en Baldvin Már er 21 árs gamall. Báðir eru fræknir Gettu betur spilarar. Baldur Már var í sigurliði Borgarholtsskóla 2005 en Magnús Lúðvík hefur síðastliðin tvö ár verið í Gettu betur-liði MR og er kominn í 8 liða úrslit í keppninnar í ár. Þar með er hann meðal þeirra átta bestu á tveimur vígstöðvum og verður spennandi að fylgjast með hversu langt hann nær.

Í viðureigninni gegn Baldvini Má fór Magnús Lúðvík vel af stað og náði fljótlega góðu forskoti, sem hann hélt þar til á endasprettinum. Í lokaspurningu Magnúsar, þegar staðan var 19-16, lagði hann undir 3 stig, sem þýddi að hann hefði unnið ef hann hefði svarað rétt. En hann vissi ekki svarið og staðan því skyndilega orðin jöfn 16-16. Baldvin átti enn inni eina spurningu og gat stolið sigrinum. Hann ákvað þá að leggja 5 stig undir en svaraði rangt og því var lokastaðan 16-11, Magnúsi í vil.

Magnús er þar með kominn í 8 manna úrslit ásamt þeim Páli Ásgeiri Ásgeirssyni og Helga Árnasyni.

Fjórða viðureign fyrstu umferðar fer fram að viku liðinni, fimmtudaginn 8. mars. Þar eigast við grúskarar tveir, á ólíkum aldri og af sitthvoru kyninu; Illugi Jökulsson ritstjóri á móti Bryndísi Sveinsdóttur, nema og blaðakonu, en aldursmunurinn er nærri 20 ár. Illugi snýr þá aftur til keppni í Meistaranum, en hann var með í fyrstu Meistarakeppninni og náði þá alla leið í undanúrslit. Þar beið hann lægri hlut fyrir Jónasi Erni Helgasyni, sem síðan átti eftir að vinna keppnina og verða krýndur Meistari. Bryndís hefur ekki tekið opinberlega þátt í spurningakeppni áður en komst inn í Meistarann eftir að hafa staðið sig         einna best allra í inntökuprófinu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×