Innlent

Eldur í sendibíl

Eldur blossaði upp í litlum sendibíl, sem stóð við íbúðarhús í Kópavogi í nótt. Heimilisfólk vaknaði og kallaði á slökkvilið, sem náði að koma í veg fyrir að eldurinn læsti sig í húsið, en útveggur var byrjaður að sviðna.

Þótt eldurinn í bílnum hafi verið slökktur á svipstundu, er hann gjörónýtur og er talið að eldurinn hafi kraumað lengi í honum, áður en hann braust út. Eldsupptök eru ókunn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×