Erlent

Áhugaleysi gagnvart hagsmunum Serba

Rússar hafa áhyggjur af áhugaleysi vesturlanda gagnvart hagsmunum Serba í framtíðaráætlunum um sjálfstæði Kosovo. Sergei Lavror utanríkisráðherra Rússa sagði áætlanir undir forystu Martti Ahtisaari ekki taka tillit til málefna í Belgrad og áhyggjur Serba. Þetta sagði hann á fréttamannafundi í dag.

Martti Ahtisaari stýrir nefnd á vegum Sameinu þjóðanna sem reyna að finna viðunandi áætlun fyrir sjálfstæði Kosovo. Rússar hafa neitunarvald í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna um samþykkt áætlunarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×