Erlent

Tætti í sundur fótboltavöll

MYND/AP

Serbneskur fótboltakappi gerði sér lítið fyrir og tætti grasvöll FC Mramor áhugamannaliðsins með traktor í hefndarskyni fyrir að hafa verið rekinn úr liðinu.

Slvomir Milnovic er 25 ára og fór með stöðu miðjumanns hjá liðinu. Þegar honum var sparkað varð hann arfavitlaus.

Hann brá þá á það ráð að taka traktor og plóg af bóndabæ fjölskyldunnar. Síðan tætti hann grasflötina með plógnum svo enginn annar gæti spilað á vellinum.

Íbúar í nágrenni við fótboltavöllinn heyrðu í traktornum og létu lögregluna vita.

Maðurinn var handtekinn og ákærður fyrir skemmdir á einkalóð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×