Sport

Venus komin í úrslit

Venus Williams er öll að koma til eftir meiðsli.
Venus Williams er öll að koma til eftir meiðsli. MYND/Getty

Tenniskonan Venus Williams, sem eitt sinn bar höfuð og herðar yfir stöllur sínar í íþróttinni, tryggði sér í gær sæti í úrslitaviðureign hins árlega Memphis-meistaramóts sem fram fer í Bandaríkjunum. Þetta er fyrsta mótið sem Venus tekur þátt í síðan í október en hún hefur glímt við þrálát meiðsli síðustu árin.

Venus lagði rúmensku stúlkuna Ioana Raluca Olaru í undanúrslitum, 6-3 og 6-2, Venus hafði verið sett í 7. sætið á styrkleikalista mótsins. Hún kveðst lítið finna fyrir ökkla- og úlnliðsmeiðslunum sem hafa angrað hana síðustu mánuði og er bjartsýn á hagstæð úrslit í úrslitaviðureigninni þar sem hún mætir Shahar Peer frá Ísrael, sem spáð var sigri fyrir mótið.

“Þetta er allt að koma hjá mér og mér finnst ég vera að bæta mig með hverjum leik. Þetta hefur verið löng vika og langar viðureignir fyrir mig en ég held að það leynist smá orka til viðbótar til að komast í gegnum úrslitin,” sagði Venus.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×