Menning

Stofuspjall um Kraftbirtíngarhljóm guðdómsins

Sunnudaginn 25. febrúar kl. 16.00 er komið að öðru stofuspjalli ársins í tengslum við verk mánaðarins á Gljúfrasteini sem að þessu sinni er skáldsagan Heimsljós. Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur stýrir spjallinu og mun hún einkum beina sjónum sínum að Kraftbirtíngarhljómi guðdómsins, fyrsta hluta sögunnar. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Steinunn ætlar að velta fyrir sér hvað einkenni Kraftbirtíngarhljóminn sem bernskulýsingu og muninum á því hvernig Halldór nálgast viðfangsefni sín í þessu fyrsta bindi Heimsljóss og síðari hlutum verksins. Saga sálarinnar hjá skáldinu Ólafi Kárasyni og fléttan við þjóðarsálina og þjóðskáldin, ekki síst Halldór Laxness sjálfan, er Steinunni einnig hugleikin.

Gestir eru hvattir til að velja uppáhalds línurnar sínar úr Kraftbirtíngarhljómi guðdómsins, lesa þær upp og segja í stuttu máli frá því hvað sé svona heillandi við þessar línur. Enn fremur væri gaman að heyra ef einhverjir eiga sérstaka sögu um hvernig þeir komust fyrst í tæri við Heimsljós og hvaða áhrif bókin hafði á þá.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.