Körfubolti

NBA molar: Nash ætlar að spila í kvöld

Steve Nash ætlar að láta reyna á axlarmeiðslin gegn Clippers í kvöld
Steve Nash ætlar að láta reyna á axlarmeiðslin gegn Clippers í kvöld NordicPhotos/GettyImages

Deildarkeppnin í NBA hefst á ný í kvöld eftir stutt hlé vegna stjörnuleiksins. Steve Nash ætlar að spila aftur eftir meiðsli, Michael Jordan ritar leikmönnum Bobcats bréf, Mutombo ætlar að spila á næsta ári, Radmanovic meiddur hjá Lakers, Payton og Cassell sýknaðir af líkamsárás, og Pat Riley viðurkennir mistök.

Steve Nash hjá Phoenix Suns hefur nú verið frá keppni í um hálfan mánuð vegna axlarmeiðsla og hefur lið Phoenix fyrir vikið dregist aftur úr Dallas í toppbaráttunni í Vesturdeildinni. Phoenix sækir LA Clippers heim í kvöld.

Gamla brýnið Dikembe Mutombo hjá Houston Rockets hefur lýst því yfir að hann ætli að spila eitt ár enn í NBA deildinni. Hann er fertugur og er elsti leikmaður deildarinnar. Mutombo á að baki yfir 1100 leiki í deildinni þar sem hann hefur spilað með sex liðum á sextán ára ferli.

Michael Jordan hefur ekki verið áberandi síðan hann keypti sig inn í lið Charlotte Bobcats á sínum tíma, en hann ritaði leikmönnum liðsins bréf um helgina þar sem hann lýsti yfir óánægju sinni með árangur liðsins í vetur. Ekkert lið í deildinni borgar eins lág laun og Bobcats og því er plássið undir launaþakinu feikinóg. Eigendur liðsins hafa lýst því yfir að ekkert verði til sparað ef réttir leikmenn verði á lausu í sumar og fór Jordan þess á leit við leikmenn að þeir leggðu jafn hart að sér og hann sjálfur til að koma þessu yngsta félagi í deildinni á réttan kjöl.

Serbinn Vladimir Radmanovic fór úr axlarlið á æfingu liðsins á dögunum og er talið að hann verði frá keppni í einar átta vikur vegna þessa. Þetta eru ekki góð tíðindi fyrir leikmanninn þar sem hann hefur verið að vinna sig hægt og bítandi inn í hópinn hjá Phil Jackson.

Þeir Gary Payton hjá Miami, Sam Cassell hjá LA Clippers og fyrrum leikmaðurinn Jason Caffey voru á dögunum hreinsaðir af öllum sökum fyrir rétti. Þremenningarnir voru árið 2003 sakaðir um að hafa ráðist á nektardansmær fyrir utan strípibúllu í Toronto það árið, en þeir voru þá liðsfélagar hjá Milwaukee Bucks. Dansmærin og útkastari á búllunni báru við þokukenndri sjón og krónískum bakverkjum eftir viðskipti sín við leikmennina, en dómari vísaði dramatískum vitnisburði þeirra frá.

Pat Riley hefur nú snúið aftur í þjálfarastólinn hjá meisturum Miami Heat eftir að hafa gengist undir tvo uppskurði. Riley viðurkenndi við endurkomuna að hann hefði átt að fara miklu fyrr í þessar aðgerðir, því hann hafi verið orðinn uppstökkur, argur og leiður á að þjálfa vegna heilsubrests og viðurkennir að hafa alls ekki sinnt starfi sínu nógu vel í haust.

Að lokum er rétt að minna á leik Milwaukee og Detroit í beinni á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan eitt eftir miðnætti í kvöld, en þá verða tíu leikir á dagskrá.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×