Lífið

Hugh Grant aftur á markaðinn

Hugh og Jamima á frumsýningu nýjustu myndar hans "Music and Lyrics" í New York sl. mánudag.
Hugh og Jamima á frumsýningu nýjustu myndar hans "Music and Lyrics" í New York sl. mánudag. MYND/AP

Þriggja ára sambandi breska leikarans og hjartaknúsarans Hugh Grants og Jemimu Khan er lokið. Parið tilkynnti þetta í gærkvöldi og lét fylgja með að sambandsslitin væru í "vinsemd."

Stöðugar fréttir voru af parinu á meðan sambandi þeirra stóð, aðallega um það að Jemima vildi stofna fjölskyldu og heimili, en hann ekki.

Hugh, 46 ára, og Liz Hurley enduðu 12 ára samband árið 2000 eftir að hann steig frægt hliðarspor með gleðikonu í Los Angeles.

Liz mun giftast unnusta sínum Arun Nayer í byrjun mars. Nýlega kom í ljós að Hugh væri ekki á gestalistanum, þrátt fyrir að þau séu enn vinir. Nú er spurningin hvort Hugh fer á listann, en það var ekkert leyndarmál að Liz og Jemima voru langt frá því að vera vinkonur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.