Dirk Nowitzki fór hamförum í sigri Dallas 14. febrúar 2007 13:17 Fáir leikmenn í deildinni eru að spila betur en Dirk Nowitzki þessa dagana NordicPhotos/GettyImages
Þjóðverjinn Dirk Nowitzki var sannarlega betri en enginn í nótt þegar Dallas lagði Milwaukee á útivelli 99-93. Dallas var um tíma 16 stigum undir í síðari hálfleik, en vann lokaleikhlutann 28-11. Nowitzki skoraði 38 stig, hirti 11 fráköst og gaf 8 stoðsendingar fyrir Dallas en Andrew Bogut skoraði 16 stig og hirti 17 fráköst fyrir Milwaukee. Dallas er langefst í deildinni með 43 sigra og aðeins 9 töp. Miami vann öruggan sigur á Portland 104-85 þar sem Dwyane Wade tók yfir að venju í fjórða leikhlutanum og skoraði þar 16 af 35 stigum sínum fyrir Miami eftir að jafnræði hafði verið með liðunum í fyrstu þremur leikhlutunum. Zach Randolph skoraði 17 stig fyrir Portland. Memphis vann góðan sigur á New Orleans 108-104. Mike Miller skoraði 22 stig fyrir Memphis en Desmond Mason 23 fyrir New Orleans. Toronto vann afar mikilvægan sigur á Chicago Bulls 112-111 á útivelli og þar með vann Toronto 28. leikinn á tímabilinu - sem er jafnmargir leikir og allt síðasta tímabil. Toronto hafði tapað 15. leikjum í röð fyrir Chicago. Chris Bosh skoraði 25 stig og hirti 14 fráköst fyrir Toronto og tryggði liðinu sigur með tveimur vítaskotum þegar tvær sekúndur lifðu leiks. Luol Deng skoraði 30 stig fyrir Chicago. Houston skellti Sacramento á heimavelli í framlengdum og æsispennandi leik 109-104. Ron Artest skoraði 39 stig fyrir Sacramento en Tracy McGrady skoraði 28 stig og gaf 12 stoðsendingar fyrir Houston. Loks vann New York óvæntan útisigur á LA Lakers í framlengdum leik 107-106. Kobe Bryant skoraði 31 stig fyrir Lakers en Jamal Crawford skoraði 24 stig fyrir New York. Þetta var 23. sigur New York í vetur og þar með jafnaði liðið fjölda sigurleikja alls síðasta tímabils þó enn séu 30 leikir eftir í töflunni þetta árið.
NBA Mest lesið Ósætti við úrelta löggjöf: „Sennilega eina þjóðin eftir í heiminum“ Sport „Vil miklu frekar eiga feril í MMA heldur en að vinna skrifstofustarf“ Sport Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Handbolti „Ein besta markvarsla sem ég hef séð“ Fótbolti Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum Handbolti Segir Leipzig hinn fullkomna áfangastað fyrir unga og efnilega leikmenn Fótbolti Seinna spjaldið var ekki viljandi: „Er bara pirraður og missi hausinn“ Íslenski boltinn LIV-kylfingar mega áfram taka þátt í Ryder-bikarnum og PGA-meistaramótinu Golf Sjáðu ótrúlega vörslu Raya og öll mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Handbolti Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira