Fótbolti

Robinho íhugar að fara frá Real Madrid

NordicPhotos/GettyImages

Brasilíski sóknarmaðurinn Robinho hefur gefið í skyn að hann vilji fara frá spænska liðinu Real Madrid fái hann ekki tækifæri til að spila meira undir stjórn Fabio Capello þjálfara. Robinho er aðeins 22 ára gamall og gekk í raðir Real árið 2005.

"Ég er ósáttur við mitt hlutskipti hjá liðinu núna af því ég er ekki að spila nógu mikið. Hjá Capello hef ég verið mikið á varamannabekknum og ef hlutirnir fara ekki að breytast til batnaðar, er ég hræddur um að ég verði að fara að skoða aðra kosti í stöðunni," sagði þessi leikni framherji.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×