Sport

Grönholm sigraði í sænska rallinu

Finnski ökuþórinn Marcus Grönholm á Ford sigraði í sænska rallinu sem fram fór um helgina. Grönholm kom í mark 53 sekúndum á undan heimsmeistaranum Sebastien Loeb á Citroen sem varð í öðru sæti og Finninn Mikko Hirvonen á Ford varð þriðji. Forysta Loeb í stigakeppninni til heimsmeistara er því aðeins tvö stig og stefnir í jafnara mót en á síðasta ári.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×