Lífið

Niðurstöðu krufningar beðið

Anna Nicole Smith ásamt kærasta sínum og lögmanni Howard K. Stern.
Anna Nicole Smith ásamt kærasta sínum og lögmanni Howard K. Stern. MYND/AP

Krufningar á líki leikkonunnar og Playboy fyrirsætunnar Önnu Nichole Smith er nú beðið. Vonast er til að hún leiði í ljós hvort dauða hennar bar að með eðlilegum hætti eða ekki. Smith fannst meðvitundarlaus á hótelherbergi í Flórída en var úrskurðuð látin á sjúkrahúsi eftir að lífgunartilraunir báru ekki árangur.

Í dag er fyrirtaka í faðernismáli fimm mánaða dóttur Smith, en núverandi og fyrrverandi kærasti fyrirsætunnar deila um faðerni. Larry Birkhead fyrrverandi kærasti Smiths hefur farið fram á að DNA sýni verði tekið af líkinu til að sanna kröfu sína. Howard K Stern lögmaður fyrirsætunnar og núverandi kærasti segist hins vegar vera faðirinn.

Smith var 39 ára þegar hún lést en árum saman barðist hún fyrir rétti sínum til auðæfa fyrrverandi eiginmanns síns, Howards Marshalls milljónamærings. Hann lést ári eftir að þau giftu sig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.