Bíó og sjónvarp

Lindsey hættir við kvikmynd

Lindsay var ekki vinsæl á meðferðarheimilinu, en aðrir sjúklingar kvörtuðu yfir fjölmiðlaþorsta leikkonunnar.
Lindsay var ekki vinsæl á meðferðarheimilinu, en aðrir sjúklingar kvörtuðu yfir fjölmiðlaþorsta leikkonunnar.
Leikkonan Lindsay Lohan hefur hætt við hlutverk í kvikmyndinni "A Woman Of No Importance." Ástæðan er að Linds vill ná sér betur eftir áfengismeðferð. Annette Bening leikur stórt hlutverk í myndinni, en þetta er í annað sinn sem ætlunanir um að þær stöllur leiki saman í mynd fara út um þúfur. Árið 2003 hætti Annette við myndina Freaky Friday, en þar lék Lindsay aðalhlutverkið.

Linsay mun hafa hlakkað til að vinna með Annette þar sem hún hefur verið aðdáandi hennar um árabil. Linds vinnur nú að myndinni "I Know Who Killed Me". Tökum á henni hefur tvisvar verið hætt, í fyrra skiptið þegar Lindsay fór í botnlangauppskurð, og í seinna skiptið þegar hún skráði sig í meðferð.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×