Körfubolti

Indiana - LA Lakers í beinni á Sýn í kvöld

Kobe Bryant hefur skorað að meðaltali 37 stig í síðustu fjórum leikjum
Kobe Bryant hefur skorað að meðaltali 37 stig í síðustu fjórum leikjum NordicPhotos/GettyImages
Leikur Indiana Pacers og Los Angeles Lakers verður sýndur beint á Sýn á miðnætti í kvöld. Lið Indiana er enn að slípa sig saman eftir mikil leikmannaskipti á dögunum og hefur liðið unnið 24 leiki og tapað 21. Lakers hefur ekki gengið jafn vel undanfarið en liðið vann þó stórsigur á Boston í síðasta leik þar sem Kobe Bryant fór á kostum með 43 stigum. Lakers hefur unnið 28 leiki og tapað aðeins 18.
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×