Bíó og sjónvarp

Köld slóð til Gautaborgar

Elva Ósk og Þröstur Leó í hlutverkum sínum myndinni.
Elva Ósk og Þröstur Leó í hlutverkum sínum myndinni.

Kvikmyndinni Kaldri slóð hefur verið boðið að taka þátt í "Nordic Film Market" sem er sölumarkaður innan Gautaborgar hátíðarinnar. Það eru einungis tuttugu myndum frá Norðurlöndunum boðin þáttaka á þessum lokaða markaði og því er þetta mikill fengur fyrir framleiðendur myndarinnar.

Kaupendur og dreifendur kvikmynda um allan heim sækja þennan sölumarkað sem hefur vaxið mjög undanfarin ár. Í dag þykir Gautaborgarhátiðin sú stærasta á Norðurlöndunum.

Sölufyrirtækið NonStop sales sér um kynningu myndarinnar á hátíðinni og verða tvær sýningar yfir helgina. Eftir það fer myndin á Berlínarhátíðina þar sem einnig verða tvær sölusýningar.

Kvikmyndin Köld slóð fjallar um harðsvíraðan blaðamann sem lendir í mikilli hættu þegar hann rannsakar dularfullt dauðsfall á virkjunarsvæði á hálendi Íslands. Björn Br. Björnsson er leikstjóri myndarinnar en með helstu hlutverk fara Þröstur Leó Gunnarsson, Elva Ósk Ólafsdóttir, Hjalti Rögnvaldsson, Anita Briem og Helgi Björnsson. Handrit skrifar Kristinn Þórðarson, sem einnig framleiðir ásamt Magnúsi Viðari Sigurðssyni fyrir Sagafilm.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×