Sport

Góður sigur hjá Guðmundi og félögum

Mynd/BTÍ

Íslandsmeistarinn í borðtennis Guðmundur E. Stephensen átti góðan leik í sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi 29. janúar 2007 með liði sínu meistaraliði Eslövs. Eslövs lék útileik gegn Falkenberg BTK og sigraði 6 - 2.

Guðmundur lék mjög vel þar sem hann sigraði sína leiki, fyrst gegn Erik Ahman 3 - 2 (11 - 7, 7-11, 10 -12, 11 - 7 og 11 - 3), síðan lék Guðmundur gegn Lukas Rydén þar sem Guðmundur sigraði 3 - 2 (11 - 7, 12 - 14, 8 -11, 14-12 og 11 - 6)

Næsti leikur Eslövs í sænsku úrvalsdeilddin er gegn Sparvagens BTK 31. janúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×