Erlent

Tveir létust í sjálfsmorðsárás í Pakistan

Tveir létust í sjálfsmorðsárás við Mariott hótelið í Islamabad höfuðborg Pakistan í dag. Innanríkisráðherra landsins sagði að auk árásarmannsins hefði öryggisvörður hótelsins látið lífið.

Fréttamaður Reuter fréttastofunnar sagði bifreið, sem var rústir einar, hafi verið við hlið hótelsins og blóð og líkamsleifar á víð og dreif.

Lögregla lokaði svæðinu fljótlega af og sírenur ómuðu um hverfið, en þar er fjöldi opinberra bygginga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×