Sport

Safarova sló Mauresmo úr keppni

NordicPhotos/GettyImages
Tékkneska stúlkan Lucie Safarova kom heldur betur á óvart í nótt þegar hún gerði sér lítið fyrir og sló Amelie Mauresmo úr leik á opna ástralska meistaramótinu í tennis. Safarova er í 40. sæti heimslistans, en Mauresmo átti titil að verja á mótinu og var í öðru sæti heimslistans fyrir mótið.

 

Rússneska stúlkan Maria Sharapova hefur þegar tryggt sér fyrsta sætið á heimslistanum, en Justine Henin-Hardenne er ekki með á opna ástralska og Mauresmo og Svetlana Kuznetsova eru báðar fallnar úr leik á mótinu. Sharapova hefur ekki verið í efsta sætinu síðan árið 2005. 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×