Erlent

Beckham leikur ekki fleiri leiki með Real Madrid

MYND/AP

David Beckham mun ekki spila fleiri leiki fyrir Real Madrid, þá sex mánuði sem hann á eftir af samningi sínum við félagið. Beckham hefur sem kunnugt er gengið til liðs við bandaríska félagið Galaxy, fyrir eina milljón dollara á viku.

Fabio Capello, þjálfari Real Madrid, sagði við fréttamenn í dag að Beckham muni æfa með liðinu, en hann muni ekki leika fleiri leiki með því. Spurður að því hvort Beckham yrði lánaður frá liðinu, á þessu hálfa ári, sagði Capello; "Þú verður að spyrja Beckham að því."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×