Erlent

Framdi morð í afbrýðiskasti

Danskur karlmaður á fertugsaldri hefur viðurkennt að hafa banað fyrrverandi sambýliskonu sinni og tveimur börnum þeirra, í bænum Sønderborg á Suður-Jótlandi í gær. Maðurinn kyrkti konuna og sex ára gamlan son þeirra en stakk svo fjögurra ára gamla dóttur þeirra til bana. Lögregla telur að maðurinn hafi framið þessi voðaverk í afbrýðisemiskasti en þau konan slitu samvistum fyrir hálfu ári. Hann íhugaði að fremja sjálfsmorð en þegar fjölskyldan hélt svo jól saman á dögunum taldi hann að þau myndu taka saman á ný.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×